Ert þú að borga of hátt gjald fyrir þinn bíl?
Hér er hægt að sjá með einföldum hætti hvort CO2 skráning bílsins er þekkt í bifreiðaskrá með því að smella á flipann hér til hliðar og skrá þar inn fastnúmer bifreiðar. Ef losun er ekki þekkt gætir þú verið að greiða of há bifreiðagjöld. >>
Hvað þarf að gera?
Þegar þú greiðir fyrir pöntun fyllir þú út upplýsingar um þig og eftirfarandi upplýsingar um bílinn:
a) fastnúmer bílsins b) hvort bíllinn er beinskiptur eða sjálfskiptur c) framdrifinn, afturhjóladirfinn eða með sídrifi/fjórhjóladrifi og loks d) þarf að senda okkur myndir af gerðarplötum bílsins á netfangið myndir@co2skraning.is >>
Fyrsta skref: Panta upplýsingar um CO2 losun
Til þess að meta hvort það svarar kostnaði að breyta skráningu um CO2 losun bifreiðar getur þú pantað hjá okkur nauðsynlegar upplýsingar um bifreiðina, gagnaöflun kostar 1.250 kr. m. vsk. Í allflestum tilfellum fáum við upp gefið hver CO2 losun bílsins er. Niðurstaðan segir til um hver ný CO2 losun bifreiðarinnar verður og hvaða áhrif það hefur á bifreiðagjöldin. Einnig kemur fram hvort það borgar sig að breyta skráningunni? >>
Annað skref: Panta skráningu um CO2 losun bifreiðar
Pöntun á vottuðum skráningargögnum fyrir CO2 losun bifreiðar kostar 20.000 kr. m. vsk. Breytingin leiðir til þess að bifreiðin verður framvegis skráð með CO2 losun í bifreiðaskrá hjá Umferðarstofu og þú greiðir bifreiðagjöld af bifreiðinni í samræmi við það. >>











